

BIBS Supreme er einstakt snuð með stílhreinni danskri hönnun. Töff litir sameinast nútímalegu möttu yfirborði sem gefur snuðinu vandað og glæsilegt útlit. Einstakur og fágaður skjöldurinn er hannaður til að tryggja gott loftflæði að viðkvæmri húðinni í kringum munn barnsins.
Túttan er samhverf í lögun til að draga úr þrýstingi á tennur og kjálka. Hún fæst bæði úr mjúku náttúrulegu latexgúmmíi og sílikoni. Þar sem túttan er flöt og tárlaga styður hún við réttan þroska kjálkans. Sílikontúttan er með nýstárlegu mynstri sem er innbyggt í túttuna og gerir hana þolnari gegn fyrstu beittu tönnum barnsins en hefðbundin sílikonsnuð.
-
Samhverf tútta sem styður við þroska kjálka barnsins
-
Fæst úr sílikoni
-
Snuðin eru framleidd úr hágæðaefnum og eru 100% laus við BPA, PVC og þalöt
-
Skjöldurinn er úr pólýprópýleni (PP), léttu og endingargóðu plastefni
-
Fæst í stærðum 1 og 2
-
Stærð 1 og 2 hentar nýburum
-
Kemur í pakka með tveimur snuðum
Hannað og framleitt í Danmörku/Evrópusambandinu.

选择选项

