Bugaboo forpantanir 跳转到内容

购物车

您的购物车为空

Bugaboo forpantanir

Bugaboo forpantanir Algengar spurningar

 

- Hvernig virkar forpöntun á Bugaboo?

Ef Bugaboo vara er ekki til á lager eða er væntanleg í komandi sendingum, getur þú tryggt þér eintak með því að gera forpöntun hjá okkur.

Þú getur einnig nýtt þér forpöntun ef þú ert snemma í því og vilt geta valið nákvæmlega þann afhendingardag sem hentar þér best.

Við tökum 10.000 kr. staðfestingargjald, sem tryggir þér vöruna þegar hún kemur næst. Upphæðin er síðan dregin frá heildarverði við afhendingu.

 

- Hvernig geri ég forpöntun?

Þú getur forpantað á tvo vegu:

Í verslun okkar í Ármúla

Með því að hafa samband í tölvupósti - petit (at) petit.is

Þegar staðfestingargjaldið hefur verið greitt er forpöntunin þín tryggð.

 

- Hvaða upplýsingar þurfið þið frá mér?

Til að ganga frá forpöntun þurfum við:

Fullt nafn

Símanúmer

Tölvupóst

Ósk um afhendingardag

 

- Hvenær fæ ég vöruna mína?

Áætlaður afhendingartími er yfirleitt 2–3 vikur, en getur breyst eftir gerð og framboði frá framleiðanda á hverjum tíma.

Við látum þig alltaf vita ef eitthvað breytist.

 

- Hvað gerist þegar varan kemur?

Um leið og varan berst til okkar höfum við samband við þig og gerum hana tilbúna til afhendingar í verslun okkar.

 

- Þarf ég að greiða allt fyrirfram?

Nei — aðeins 10.000 kr. staðfestingargjald er greitt við forpöntun.

Eftirstöðvar eru greiddar við afhendingu.

 

- Get ég bætt við vörum í pöntunina mína?

Já, að sjálfsögðu!

Þú getur bætt við vörum fram að afhendingu og við setjum þær með í pöntunina.

 

- Hvað ef tafir verða á afhendingu?

Stundum geta orðið tafir vegna mikillar eftirspurnar hjá Bugaboo í Evrópu.

Ef það gerist:

Látum við þig vita strax

Bjóðum upp á aðrar lausnir ef mögulegt er

Gerum okkar allra besta svo tafirnar verði sem stystar.

 

- Af hverju ætti ég að forpanta?

Bugaboo vörur seljast oft mjög hratt, sérstaklega vinsæl módel og litir.

Með forpöntun:

Tryggir þú þér vöru úr næstu sendingu

Minnkar líkur á að missa af vöru ef framleiðsla er takmörkuð

Stjórnar þú afhendingardeginum ef þú forpantar með fyrirvara

 

Ef þú hefur einhverjar spurningar er þér alltaf velkomið að hafa samband.

 

Contact

Powered by Omni Themes